Góðan dag eða ég vona að þið hafið átt náðugan dag því minn dagur var ömurlegur þess vegna er ég að skrifa þetta kl 00:34 þar sem ég held að álögin af þriðjudeginum sé lokið ég nenni ekki að fara í smáatriði en þetta var það sem gerðist: fall ,strætóvesen og í fyrsta sinn síðan ég man eftir mér þá lagði ég líf mitt og sál til að komast á æfingu, ég hljóp 100 metra, til þess eins að fá að vita að æfingunni hefði verið flýtt og þar með búinn þar sem ég var hálftíma of seinn en nóg um það ég vill miklu frekar tala um mína yndislegu svalahurð sem getur refsað manni harkalega hvenær sem er og hún ákvað að klemma minn yndislega putta en eins og sannur víkingur þá harkaði ég það af mér líkt og forfeður mínir hefðu gert :D. Ég fór í sund í dag og skemmti mér konunglega hafði aldrei ímyndað mér að það væri hægt að æfa svona margt í sundi svp sem fimleikaæfingar og að lyfta rassinum upp og niður og vera alltaf brosandi, síðan synti ég líka 1 kílómetra en það er nú ekkert merkilegt það veit fólk sem þekkir mig og tekur mér eins og ég er semsagt félagar mínir í félagi blindra og heyrnalausra,
góða nótt minn litli ljúfur mitt ljósið bjarta líf mitt hefur öðlast tilgang með þér þú átt sömu drauma í þínu hjarta...
sofið rótt
í alla nótt
ps: þetta ljóð er ætluð sérstakri manneskju með spegil fyrir framan sig finnið út hver það er og þið fáið pylsu og kók.